• Nýr samstarfsaðili

    Við bjóðum Domusnova fasteignasölu velkomna í hóp ánægðra viðskiptavina stofunnar, og erum afar spennt fyrir komandi tímum. Ört stækkandi hópur framúrskarandi fasteignasala nýtir sér þjónustu okkar og fyrir það erum við þakklát.

  • Íbúð í 101 Reykjavík

    Íbúð til leigu!

    Innan nokkurra daga losnar lítil tveggja herbergja íbúð í hjarta miðborgarinnar í langtímaleigu. Tilvalið fyrir fyrirtæki eða starfsmannafélög, en einnig fyrir einstaklinga og pör sem vilja vera í göngufæri við allt sem miðborgin hefur upp á að bjóða.

    Frekari upplýsingar eru veittar áhugasömum í tölvupósti holmgeir@dexter.is eða í s. 777-1212.

  • Rofabær 7-9, Reykjavík - SELT

    Nú er sala hafin á nýjum og glæsilegum íbúðum við Rofabæ 7-9 í Reykjavík, í samstarfi við Fasteignafélagið Stalla ehf. (www.stallar.is) og BG Legal ehf. (www.bglegal.is).

    Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Árbærinn liggur við Elliðaárdalinn sem er eitt stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins með fjölmörgum göngu- og hjólastígum. Mikið trjálendi liggur meðfram ánni með mörgum fallegum stöðum eins og Elliðaárfoss. Góðar samgöngæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar.

    Stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu. Þá er næsta lóð við hliðina skilgreind sem leiksvæði bæði í aðal- og hverfisskipulagi Reykjavíkurborgar. Rofabær verður “borgargata” Reykjavíkur samkvæmt hverfisskipulagi.

    Frekari upplýsingar um íbúðirnar má sjá á heimasíðu verkefnisins www.r79.is.