Starfsmenn
Hólmgeir El. Flosason, lögmaður / attorney at law Löggildur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Hólmgeir hefur starfað sem lögmaður frá árinu 2012, en þar áður sem lögfræðingur á skattasviði hjá Ernst & Young hf., Yfirskattanefnd og hjá Skattstjóranum í Reykjavík. Frá árinu 2012 starfaði Hólmgeir eingöngu við almenna lögmennsku, ýmist einn eða í samstarfi við aðra, og voru helstu verkefni hans á sviði refsiréttar og fasteignakauparéttar. Frá árinu 2018 hefur Hólmgeir þó nær eingöngu starfað á sviði fasteignakauparéttar og við samninga- og skjalagerð og gegnt stöðu yfirmanns samningadeildar á fasteignasölu.
Obba Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur
Obba er útskrifaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Undanfarin ár hefur Obba starfað við skjalafrágang, samskipti við fjármálastofnanir og verktaka, og skjalavinnslu á fasteignasölu og býr því yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu á því sviði.