Heildstæð þjónusta á sviði fasteignaviðskipta

Dexter Legal & Holding ehf. var stofnað árið 2009, en hefur frá árinu 2012 verið rekið sem sjálfstæð lögmannsstofa og eignarhaldsfélag. Starfsemin hefur tekið nokkrum breytingum í gegnum árin, en helstu sérsvið lögmannsstofunnar er fasteigna- og lausafjárkauparéttur, refsiréttur, fullnusturéttarfar og skattaréttur.

Meðal fastra verkefna Dexter Legal & Holding ehf. er almenn þjónusta við fasteignasölur, verktaka og fagaðila á sviði fasteignaviðskipta. Stofan annast að sjálfsögðu einnig þjónustu við einstaklinga, s.s. í tengslum við fasteignaviðskipti eða hvers konar deilumál sem upp geta komið.

 

Hafðu samband

holmgeir@dexter.is

Logasalir 7, 201 Kópavogur

s. 777-1212

Vertu í sambandi

 

Veist þú hvað Dexter þýðir? Dexter er komið úr latínu og þýðir einfaldlega hægri, á hægri hönd, á stjórnborða eða að vera lánsamur. Í forngrísku þýddi orðið dexi aðdáun. Dexter er andheiti sinister, sem þýðir vinstri og getur einnig vísað til illsku eða voveiflegra atburða.